Hérna eru læti!

Spyrna Íslandsmót KK 2.umferð

Spyrna Íslandsmót KK 2.umferð

Spurningar? Hafðu samband við keppnisstjóra: ingimundur@shelby.is

Myndir

Hér vantar einhverjar myndir!

Fréttir

Úrslit

O - flokkur

Sæti Nafn Félag Flokkur Stig
1 Guðvarður Jónsson BA O - flokkur 0

 B flokkur

Sæti Nafn Félag Flokkur Stig
1 Björn Sigurbjörnsson ASK  B flokkur 0

 G+ flokkur

Sæti Nafn Félag Flokkur Stig
1 Björgvin Páll guðnason KK  G+ flokkur 0
2 Óðinn Már Ingason KK  G+ flokkur 0
3 Ingi Björn Sigurðsson KK  G+ flokkur 0
4 Birkir Rafn Guðjónsson KK  G+ flokkur 0
5 Ólafur Ragnar Ólafsson KK  G+ flokkur 0
6 Hrannar Ingi Óttarsson BA  G+ flokkur 0

 G- flokkur

Sæti Nafn Félag Flokkur Stig
1 Guðmundur Árnason KK  G- flokkur 0
2 Daníel Máni Ólafsson KK  G- flokkur 0
3 Patryk Kaczyński KK  G- flokkur 0
4 Gylfi þór héðinsson AÍH  G- flokkur 0

Um keppnina

Kvartmíluklúbburinn heldur 1. umferð Íslandsmóts í spyrnu 2025 á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 7. júní 2025.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIM ásamt viðaukum hennar, reglum MSÍ og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:


Kvartmíla
G+ flokkur, G- flokkur, B flokkur og O flokkur

Ekki er ræst í riðlum í þessari keppni.
Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
Veittir verða verðlaunagripir fyrir 1., 2. og 3. sæti í öllum flokkum skv. lokaúrslitum.

Félag

KK

Viðburðarstjóri: Ingimundur Helgason

Öryggisfulltrúi: Baldur Gíslason

Skoðunarmaður: Ingólfur Arnarson

Brautarstjóri: VANTAR AÐ SKRÁ BRAUTARSTJÓRA

Dagsetningar

7. júní 2025 kl: 11:00


Brautir og vegalengdir

Kvartmílubrautin


Tegund/mótaröð

Spyrna

Íslandsmót í spyrnu - 2. Umferð

Skráningargjöld

Skráning hefst: 26. maí 2025 kl: 00:00

Skráningu lýkur: 5. júní 2025 kl: 23:59

O - flokkur: 16000 kr.-

 B flokkur: 16000 kr.-

 G+ flokkur: 16000 kr.-

 G- flokkur: 16000 kr.-


Flokkar

O - flokkur

 B flokkur

 G+ flokkur

 G- flokkur


SÉRREGLUR
Íslandsmót í spyrnu 2025 – 2. umferð

GREIN 1 KEPPNIN

1.1 Keppnin heitir Íslandsmót í spyrnu 2025 – 2. umferð.

1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum MSÍ fyrir spyrnu og þessum sérreglum.

1.3 Keppnin fer fram á kvartmílubraut Kvartmíluklúbbsins í Kapelluhrauni þann 7. júní 2025 kl: 14:00.

1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.

1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 15 skráningar.
1.5.1  Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 2 skráningar berist fyrir hann.

GREIN 2 KEPPNISHALDARI

2.1 Keppnishaldari er Kvartmíluklúbburinn (KK), til heimilis að Pósthólfi 16, 222 Hafnarfirði.

GREIN 3 FRAMKVÆMDANEFND

3.1 Framkvæmdanefnd skipa Ingimundur Helgason, Ingólfur Arnarson og Baldvin Hansson.

3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur í félagshúsnæði Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði.

GREIN 4 KEPPNISSVÆÐIÐ

GREIN 4.1 BRAUTIN

4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem  heimil er þátttaka í keppninni.

4.1.2 Brautin er ekin frá vestri til austurs.

4.1.3 Brautin er:
4.1.3.a er 201 metra (660 fet) löng í áttungsmílu.
4.1.3.b er 402
 metra (1320 fet) löng í kvartmílu.

GREIN 4.2 PITTURINN

4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.

GREIN 5 FLOKKUN OG ÚTBÚNAÐUR ÖKUTÆKJA

5.1 KEPPNISFLOKKAR

5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:



Kvartmíla
G+ flokkur, G- flokkur, B flokkur og O flokkur

 

5.1.2 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.

GREIN 6 SKRÁNING

6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.

6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.

6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum mot.akis.is.

6.4 Skáningu lýkur 4. júní 2025 kl. 17:00.

6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.

6.6 Keppnisgjald er kr. 17.500.

6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.

GREIN 7 TRYGGINGAR

7.1 Öll ökutæki sem þátttaka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.

7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.

GREIN 8 KEPPNIS- OG ÖKUSKÍRTEINI

8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.

8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.

8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.

GREIN 9 MERKINGAR ÖKUTÆKJA

9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.

9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.

9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.

9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.

GREIN 10 RÆSING

GREIN 10.1 ALMENNT

10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.

GREIN 10.2 TÍMASETNINGAR OG HÖGUN

10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 14:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 16:00. Ræst úr kyrrstöðu.

GREIN 10.3 RÖÐ OG AFSTAÐA ÖKUTÆKJA VIÐ RÆSINGU

10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.

10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.

10.3.3 Uppröðun að loknum tímtökum er skv. "second chance" fyrirkomulagi.

GREIN 11 SKYLDUR KEPPENDA OG ÖKUMANNA

11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.

11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni http://nn.is/Mm68Z

11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.

11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.

11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.

GREIN 12 ÚRSLIT

12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.

12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.

12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.

12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.

GREIN 13 VERÐLAUN

13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1., 2. og 3. sæti í lokaúrslitum.

GREIN 14 EMBÆTTISMENN OG STARFSMENN

GREIN 14.1 DÓMNEFND

14.1.1 Dómnefnd skipa Tryggvi Magnús Þórðarson, sem jafnframt er formaður hennar, Baldvin Hansson og Aron Óskarsson.

GREIN 14.2 HELSTU STARFSMENN

14.2.1 Keppnisstjóri er Ingimundur Helgason.

14.2.2 Skoðunarmaður er Ingólfur Arnarson.

14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.

14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.

14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.

GREIN 14.3 HLUTVERK ÖRYGGISFULLTRÚA

14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.

14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann þörf á því.

14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.

14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.

GREIN 14.4 HLUTVERK UMHVERFISFULLTRÚA

14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.

Skráðir þátttakendur

Nafn Félag Flokkur
Birkir Rafn Guðjónsson KK  G+ flokkur
Björgvin Páll guðnason KK  G+ flokkur
Hrannar Ingi Óttarsson BA  G+ flokkur
Ingi Björn Sigurðsson KK  G+ flokkur
Óðinn Már Ingason KK  G+ flokkur
Ólafur Ragnar Ólafsson KK  G+ flokkur
Daníel Máni Ólafsson KK  G- flokkur
Guðmundur Árnason KK  G- flokkur
Gylfi þór héðinsson AÍH  G- flokkur
Patryk Kaczyński KK  G- flokkur
Björn Sigurbjörnsson ASK  B flokkur
Guðvarður Jónsson BA O - flokkur