Lýsing:
Önnur umferð Íslandsmóts í sandspyrnu verður haldin á Aksturssvæði Bílaklúbbs Akureyrar þann 19. júní næstkomandi.
Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, reglum AKÍS og sérreglum keppninnar.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum ökutækja með frávikum skilgreindum í sérreglum keppninnar:
Mótorhjól
Unglingaflokkur (MU)
Unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir (U15)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Fjórhjól (FJ)
Vélsleðar (V)
Dagskrá:
Dagskrá keppninnar verður sem hér segir:
10:00 svæðið opnar
10:30 Mæting keppenda
10:35 Skoðun hefst
11:00 Pittur lokar
11:30 Skoðun lýkur
11:45 Keppendafundur
12:00 Barnaflokkur er keyrður í 30 mínutur
12:45 Tímataka
14:00 Tímatöku lýkur
14:15 Keppni hefst
15:45 Áætluð keppnislok
Kærufrestur er í 30 mínutur eftir að bráðabirðaúrslit eru birt.
Verðlauna afhending á sandspyrnu braut við ljósin.
Bílaklúbbur Akureyrar
19. júní 2026 kl: 14:00
Bílaklúbbur Akureyrar BA
Sandspyrna
Skráning hefst: 3. júní 2026 kl: 12:00
Skráningu lýkur: 14. júní 2026 kl: 17:00
Skráningargjald: 13000 kr.-
Fjórhjól (FJ)
Mótorhjól 1 cyl (1C)
Mótorhjól 2 cyl + (2C+)
Unglingafl 12-16 ára / 85cc og undir (U16)
Unglingaflokkur (MU)
Vélsleðar (V)
SÉRREGLUR Blikk og Tækni sandspyrna Bíladagar 2026 í mótröð Íslandsmeistaramót - 2. umferð
1.1 Keppnin heitir Blikk og Tækni sandspyrna Bíladagar 2026.
1.2 Keppnin er haldin samkvæmt Reglubók FIA ásamt viðaukum hennar, keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir spyrnu og þessum sérreglum.
1.3 Keppnin fer fram á Sandspyrnubraut BA
91,44 m
, þann 19. júní 2026 kl: 14.15
1.4 Keppninni verður ekki frestað nema ef ekki viðrar til aksturs að mati keppnisstjóra, dómnefndar eða öryggisfulltrúa eða ef til koma Force Majeure aðstæður.
1.5 Keppnin verður felld niður berist ekki að minnsta kosti 5 skráningar.
1.5.1 Ekki er keppt í tilteknum keppnisflokki nema að lágmarki 3 skráningar berist fyrir hann.
2.1 Keppnishaldari er Bílaklúbbur Akureyrar, til heimilis að Hlíðarfjallsvegi 13.
3.1 Framkvæmdanefnd skipa Einar Gunnlaugsson, Valdimar G. Valdimarsson og Vilberg Njáll Jóhannsson
3.2 Framkvæmdanefnd hefur aðsetur að Hlíðarfjallsvegi 13, Akureyri.
4.1.1 Brautin hefur gilda gerðarvottun sem hæfir þeim flokkum sem keppt verður í og þeim ökutækjum sem heimil er þátttaka í keppninni.
4.1.2 Brautin er ekin frá austri til vesturs.
4.1.3 Brautin er 91,44 metra (300 fet) löng.
4.2.1 Veiturafmagn (230 volt AC) er að jafnaði í boði en framboð tengla er takmarkað.
4.2.2 Hámarkshraði ökutækja í pitt er gönguhraði.
5.1.1 Keppt verður í eftirtöldum flokkum ökutækja sem hæfa gerðarsamþykki brautarinnar:
5.1.1.a Buggybílar
Fólksbílar
Jeppar
Opinn flokkur bíla
Sérsmíðuð ökutæki
Unglingaflokkur
Útbúnir fólksbílar
Útbúnir jeppar
MSÍ-Fjórhjól (FJ)
MSÍ-mótorhjól 1 cyl (1C)
MSÍ-mótorhjól 2 cyl+ (2C+)
MSÍ-unglingaflokkur (MU)
MSÍ-unglingaflokkur 12-15 ára / 85cc og undir (U15)
MSÍ-Vélsleðar (V)
.
5.1.2 Þegar úrslit liggja fyrir í öllum flokkum er keppt í Allt flokki bæði bíla og mótorhjóla.
5.1.3 Ökutæki sem standast öll skilyrði þess flokks sem þau eru skráð í eru gjaldgeng í keppninni.
6.1 Engin takmörk eru sett á fjölda ökutækja sem geta skráð sig til keppni.
6.2 Skráning fer fram í gegnum rafrænt skráningarform á vef AKÍS.
6.3 Skráning hefst þegar opnað hefur verið fyrir skráningar á vefnum www.akis.is.
6.4 Almennri skráningu lýkur þann 2026-06-17 17:00:00.
6.5 Skráningar handhafa erlendra keppnisskírteina eru samþykktar í þessari keppni.
6.6 Skráningargjald er kr. 12500 og leggst keppnisskírteini AKÍS ofan á það.
6.6aSkráningargjald fyrir 12-17 ára er kr. 6250 kr og leggst keppnisskírteini AKÍS ofan á það.
6.7 Skráning og greiðsla keppnisgjalds felur í sér:
6.7.1 þátttökurétt í keppninni;
6.7.2 keppnisskírteini keppanda og ökumanns útgefið af AKÍS, ef við á.
7.1 Öll ökutæki sem þátt taka í keppninni skulu hafa gilda frjálsa ábyrgðartryggingu.
7.2 Ökumenn slysatryggja sig á eigin vegum og forsendum eftir því sem þeim sjálfum þykir ástæða til.
8.1 Ökumenn skulu hafa gild ökuréttindi í að minnsta kosti flokki B samkvæmt reglugerð Samgöngustofu um ökuskírteini nr. 830/2011.
8.1.1 Hafi ökumaður ekki náð bílprófsaldri er heimilt að veita undanþágu frá þessu ákvæði eins og landslög og reglur leyfa.
8.2 Ökumenn skulu framvísa gildu ökuskírteini í samræmi við grein 8.1 við mætingu á keppnisstað.
8.3 Keppendur og ökumenn skulu kynna sér reglur Reglubókar FIA varðandi nauðsynleg keppnisskírteini til þátttöku í akstursíþróttakeppni sem þessari.
8.3.1 Gildri skráningu fylgir rafræn útgáfa viðeigandi keppnisskírteina keppanda og ökumanns frá AKÍS og þurfa þeir því ekki að framvísa þessum keppnisskírteinum sérstaklega.
9.1 Keppnisnúmeri keppanda er úthlutað af keppnishaldara og birt á upplýsingatöflu keppninnar.
9.2 Keppnisnúmer skal vera staðsett á ökutæki og skal það vera:
9.2.1 staðsett á ökutækjum í bílaflokkum í afturrúðu að ofanverðu horni bílstjóramegin;
9.2.2 staðsett á ökutækjum í mótorhjólaflokkum að framan;
9.2.3 í hvítum lit, eða því sem næst;
9.2.3 að lágmarki 8 cm að hæð.
9.3 Keppendum er frjálst að útvega eigin keppnisnúmeramerkingar.
9.4 Um auglýsingar á ökutækjum gilda reglur AKÍS og reglur og lög landsins.
10.1.1 Öll ökutæki skráð til keppni fá að ræsa.
10.2.1 Ræsing fer fram á eftirfarandi tímum og með tilgreindri högun:
10.2.1.a Tímataka klukkan 11:15. Ræst úr kyrrstöðu.
10.2.1.c Útsláttarkeppni klukkan 13:00. Ræst úr kyrrstöðu.
10.3.1 Keppnisstjóri ákveður röð ökutækja / keppnisflokka við ræsingu.
10.3.2 Vél ökutækja skal í öllum tilfellum vera í gangi við ræsingu.
11.1 Keppendur og allir ökumenn skulu mæta á keppendafund á þeim tíma og stað sem auglýstur er í dagskrá eða á upplýsingatöflu, og sitja hann allan.
11.1.1 Sé keppandi og/eða ökumaður ekki á fundinum getur keppnisstjóri vísað viðkomandi úr keppni.
11.2 Upplýsingatafla keppninnar er rafræn og aðgengileg á vefnum á slóðinni https://https://mot.akis.is/keppni/upplysingatafla/560 .
11.2.1 Þar birtast allar tilkynningar til keppenda og ökumanna, ákvarðanir dómnefndar og annað sem skylt er, eða þarft, að miðla til þeirra þar til keppni lýkur.
11.3 Keppendur eru minntir á rétt sinn til að leggja fram kærur samkvæmt Reglubók FIA, grein 13.
11.4 Keppendum og ökumönnum er sérstaklega bent á að þekkja og virða:
11.4.1 Siðareglur AKÍS fyrir samfélagsmiðla;
11.4.2 Reglur AKÍS um dróna.
12.1 Úrslit ákvarðast samkvæmt keppnisgreinarreglum AKÍS um spyrnu.
12.2 Engin forgjöf er veitt keppendum í þessari keppni.
12.3 Bráðabirgðaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar um leið og tímavörður hefur tekið þau saman.
12.4 Lokaúrslit eru birt á upplýsingatöflu keppninnar þegar dómnefnd hefur lokið störfum.
13.1 Verðlaun verða veitt, í öllum flokkum, fyrir 1. og 2. sæti í lokaúrslitum.
13.2 Verðlaun í Allt flokkum eru veitt fyrir 1. sæti.
14.1.1 Dómnefnd skipa Einar Gunnlaugsson, sem jafnframt er formaður hennar, Valdimar G Valdimarsson og Vilberg Njáll Jóhannesson.
14.2.1 Keppnisstjóri er Þóra Kristín Hafdal Flosadóttir.
14.2.2 Skoðunarmaður er Baldur Pálsson.
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björg Waage Björnsdóttir.
14.2.4 Sjúkrafulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni þar sem gert er ráð fyrir að kalla til sjúkrabíl komi upp atvik sem krefjast sérhæfðrar sjúkra- eða læknisaðstoðar við keppendur, ökumenn, starfsfólk eða áhorfendur.
14.2.4.a Almenn verkefni sem telja mætti eðlilegt að sjúkrafulltrúi annaðist falla undir öryggisfulltrúa.
14.2.5 Umhverfisfulltrúi er ekki skipaður sérstaklega fyrir þessa keppni. Allir starfsmenn keppninnar hjálpast að við að sinna hlutverki hans.
14.3.1 Öryggisfulltrúi ber ábyrgð á að framkvæmd keppni stefni ekki áhorfendum, starfsmönnum, keppendum eða tengdum aðilum í hættu.
14.3.2 Öryggisfulltrúi hefur heimild til að stöðva keppni eða einstaka keppendur eða ökumenn, telji hann
þörf á því.
14.3.3 Verði slys á fólki ber öryggisfulltrúa að gera skýrslu um atvikið, lýsa aðstæðum og meta mögulegar orsakir.
14.3.4 Öryggisfulltrúa er heimilt að taka ökutæki sem aðild eiga að slysi til frekari skoðunar áður en keppandi fær aðgang að því aftur.
14.3.4.a Slík skoðun má fara fram eftir að keppni lýkur.
14.4.1 Hlutverk umhverfisfulltrúa er að tryggja eftir fremsta megni að umgengni á keppnissvæðinu sé til fyrirmyndar og í samræmi við gildandi lög og reglur.