Því miður hafa borist óvenju margar kvartanir á undanförnum mótum þar sem keppendur hafa styttt sér leið og farið ekki eftir réttri braut.
Fallin stika eyðir ekki hliðinu!
Ef stika fellur — hvort sem það er vegna annars keppanda, veðurs eða annars — er upphafleg lögun brautar enn í fullu gildi. Keppendur eiga að fara eftir brautinn eins og hún var skilgreind í upphafi.
Samkvæmt FIM reglum, sem MSÍ styðst við, eiga keppendur að fara um öll hlið í réttri röð. Fallin stika gefur ekki leyfi til að stytta ferilinn.
Á meðfylgjandi mynd má sjá dæmi um þetta: rauða línan sýnir óleyfilegan feril sem fer framhjá lykkjunni sem stikurnar afmarka. Þetta telst brot á reglum (course cutting) og getur leitt til tímavítis eða brottvísunar.
(Mynd: Rauð lína = óleyfil leið. Græn lína = réttur ferill.)
Við hlökkum til að sjá ykkur á réttri braut !
11.06 2026 00:00










