Hérna eru læti!

Mótorhjóla og snjósleðaíþróttafólki ársins 2026

Mótorhjóla og snjósleðaíþróttafólki ársins 2026

Lokahóf MSÍ fór fram þann 14.nóvember síðastliðinn þar sem Mótorhjóla- og snjólseðaíþróttafólk ársins 2026 var krýnt. 

Máni Freyr Pétursson hlaut kjörið Mótorhjóla og snjólseðaíþróttaamaður ársins 2026.

Máni Freyr Pétursson varð Íslandsmeistari í Enduro á árinu og vann þar með sinn annan Íslandsmeistaratitil í greininni. Auk þess hafnaði hann í þriðja sæti í Íslandsmótinu í Motocross. Hann keppti einnig fyrir Íslands hönd í alþjóðlegu motocrosskeppninni Coupe de l’Avenir og stóð sig þar með prýði. Á ferlinum hefur hann nú unnið sjö Íslandsmeistaratitla, fimm í Motocross og tvo í Enduro.

Framlag Mána til vélhjólaíþróttarinnar nær þó langt út fyrir árangur hans í keppni. Hann hefur tekið virkan þátt í félagsstarfi Vélhjólaíþróttaklúbbsins, sinnt þjálfun innan félagsins og verið einn af þjálfurum Route One-verkefnis Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands (MSÍ). Þar hefur hann lagt sitt af mörkum til að styðja við og efla næstu kynslóð vélhjólaíþróttafólks.

Með framúrskarandi árangri í keppni, þátttöku í alþjóðlegri keppni, virku félagsstarfi og mikilvægu framlagi til þjálfunar og uppbyggingar íþróttarinnar er Máni Freyr verðug fyrirmynd, bæði innan keppnisbrautarinnar og utan hennar.

 

Kristín Ágústa Axelsdóttir hlaut kjörið Mótorhjólasnjósleðaíþróttakona ársins 2026

Kristín Ágústa Axelsdóttir keppti árið 2026 í Motocross ásamt tveimur keppnum í íslandsmeistaramótinu í Enduro. Hún vann kvennaflokkinn í báðum Enduro keppnunum sem hún keppti í. Í motocrossinu gerði hún sér lítið fyrir og vann opna kvennaflokkinn með fullt hús stiga. Þar var hún með hraðasta tímann í öllum tímatökum sumarsins ásamt því að vinna öll moto sumarsins. En svona árangur kemur ekki við það að sitja heima hjá sér, Kristín æfir 5 daga vikunnar á líkamsræktarstöð og passar vel uppá mataræðið.

Við óskum þeim innilega til hamingju.

 

 

17. nóvember 2026 10:38