Hérna eru læti!

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í Motocross - Ólafsvík 14. júní

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í Motocross - Ólafsvík 14. júní

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í motocross fer fram í Ólafsvík laugardaginn 14. júní.

Keppnin fer fram á brautinni hjá Motocrossklúbb Snæfellsbæjar, sem hefur unnið hörðum höndum að undirbúningi. Brautin hefur verið endurbætt fyrir mótið og er í frábæru ástandi, bæði fyrir ökumenn og áhorfendur.

Keppt verður í öllum eftirfarandi flokkum;

Opin kvennaflokkur
65cc flokkur
85cc flokkur
Unglinga 125cc/250cc
MX1/MX2

MX-dagurinn 2025

(MX Reglur MSÍ fyrir A og B flokk)

Dagskráin hefst kl. 9:00 með tímatökum en fyrsta moto dagsins hefst hjá kvennaflokk kl. 10:40 og svo síðasta moto dagsins hjá MX1 og MX2 er kl 16:12. Gert er ráð fyrir að verðalaunaafhending hefjist á slaginu 16:40.

Skráning er hafin hér í Ólafsvík https://msisport.is/keppni/111

Við minnum á að það er hægt að skrá sig í allar keppnis sumarsins og fá þannig 15% afslátt af keppnisgjöldum – Skráning í allar keppnir; https://msisport.is/keppni/104

 

4.06 2025 12:31 | Ragnheiður Brynjólfsdóttir