
Flúðir fimm tímar endurokeppnin fór fram laugardaginn 26. maí, á Syðra Langholti í Hrunamannahreppi. Dagurinn heppnaðist einstaklega vel, og viljum við þakka öllum sem tóku þátt í keppninni – ökumönnum og áhorfendum, engin slys urðu á fólki og stemminginn var uppá 10! Í ár voru næstum 200 keppendur og vonum við að það verði enn fleiri að ári.
Sigurvegarardagsins voru;
- Járnkarlinn: Alexander Adam Kuc
- Járnkerlingin: Aníta Hauksdóttir
- Tvímenningur: Eiður Orri Pálmarsson & Víðir Tristan Víðisson
- Tvímenningur kvenna: Bryndís Einarsdóttir & Karen Arnardóttir
- Þrímenningur: Eric Máni Guðmundsson, Viktor Guðbergsson & Ketil Eggertsson
- Tilþrifaverðlaun: Svavar Smárason
En nánari úrslit keppninar má nálgast hér inná enduro.co.is
Að lokum viljum við hrósa öllum sem komu fyrir að skilja svæðið eftir hreint og allt til fyrirmyndar. Þetta skiptir öllu máli fyrir framtíð viðburða af þessu tagi.
Takk fyrir okkur – við sjáumst á næsta ári!
Járnkarlinn
1. Alexander Adam Kuc
2. Jónas Stefánsson
3. Haukur Thorsteinsson
Járnkerling
1. Aníta Hauksdóttir
2. Theodóra Björk Heimisdóttir
3. Ólöf Ásta Arnþórsdóttir
Tvímennningur
1. Eiður Orri Pálmarsson/Víðir Tristan Víðisson
2. Einar Sverrir Sigurðarson/Ingvar Sverrir Einarsson
3. Gunnlaugur Karlsson/Ármann Örn Sigursteinsson
Tvímenningur - kvenna
1. Bryndis Einarsdottir/Karen Arnardóttir
2. Björk Erlingsdóttir/Eva Karen Jóhannsdóttir
Þrímenningur
1. Eric Máni Guðmundsson/Viktor Guðbergsson/Ketill Freyr Eggertsson
2. Ísmael Ísak Michaelsson David/Aron Ómarsson/Michael B David
3. G. Atli Jóhannsson/Jón Ágúst Garðarsson/Elmar Már Einarsson
Hér var lagður metnaður í sérmerktar treyjur Flúðir fimm tímar;
Á myndinni eru; Árni Stefánsson, Jónas Stefánsson og Stefán Gunnarsson
Myndir: Sverrir Jónsson
27.05 2025 09:20 | Ragnheiður Brynjólfsdóttir