
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í motocross fór fram laugardaginn 14. júní síðastliðinn í Ólafsvík, mótið var haldið á vegum Motocrossklúbbs Snæfellsbæjar. Rúmlega 50 keppendur tóku þátt sem þykir óvenju dræm skráning. En keppendur mætu allastaðar af að landinu og keppt var í sjö flokkum, MX1, MX, kvenna, unglinga 125cc, unglinga 250cc, 85cc og svo 65cc. Brautin í Ólafsvík er bæði krefjandi sandbraut og reynir hún vel á keppendur og var hörkukeppni flestum moto-um dagsins.
Úrslit dagsins;
MX1 flokkur:
Alexander Adam Kuc
Máni Freyr Pétursson
Ingvar Sverrir Einarsson
MX2 flokkur:
Eric Máni Guðmundsson
Alex Þór Einarsson
Sindri Már Bergmundsson
Kvennaflokkur (opin flokkur):
Karen Arnardóttir
Eva Karen Jóhannsdóttir
Kristín Ágústa Axelsdóttir
Unglingaflokkur (aldur 14-18 ára, 144-125cc tvígengis):
Andri Berg Jóhannsson
Arnór Elí Vignisson
Máni Bergmundsson
MX2 - Unglinga (aldur 14-18 ára, 250cc fjórgengis):
Sigurður Bjarnason
Tristan Berg Arason
Númi Möller Pétursson
85 cc flokkur (aldur 12-14 ára):
Ísmael Ísak Michaelsson
Olivier Cegielko
Halldór Sverrir Einarsson
65 cc flokkur (aldur 10-12 ára):
Máni Mjölnir Guðbjartsson
Viktor Ares Eiríksson
Gabríel Leví Ármannsson
Önnur umferð Íslandsmótsins í motocross fer frá á Akranesi þann 28. júní næstkomandi
20.06 2025 09:51 | Ragnheiður Brynjólfsdóttir