Hérna eru læti!

bLU cRU æfingarbúðir á Spáni

bLU cRU æfingarbúðir á Spáni

Sjö efnilegir íslenskir motocross-ökumenn tóku þátt í bLU cRU námskeiði sem haldið var í Redsand á Spáni.Þjálfari þeirra er hinn þekkti og reynslumikli Brian Jörgensen, sem á að baki glæsilegan feril í motocross-heiminum og miðlar nú af reynslu sinni til næstu kynslóðar.

Brian Jörgensen, sem hefur keppt á hæsta stigi í motocross, segir íslensku krakkana hafa sýnt ótrúlegar framfarir á stuttum tíma.

„Þetta eru einstaklega metnaðarfullir ökumenn sem leggja allt sitt í verkið. Þeir eru að sýna miklar framfarir í aksturs stíl, hraða og tækni á hjólinu. Það er virkilega spennandi að sjá hversu hratt þau eru að þróast,“ .

Æfingabúðirnar eru mikilvægur liður í undirbúningi barnanna fyrir komandi keppnistímabil, þar sem þau stefna á að taka þátt í ýmsum mótum bæði á Íslandi og erlendis. RedSand veitir þeim einstakt tækifæri til að æfa undir krefjandi skilyrðum sem ekki eru alltaf í boði heima á Íslandi.

bLU cRU leggur mikla áherslu á að styðja við unga og efnilega ökumenn og bjóða þeim upp á bestu mögulegu aðstæður til vaxtar og framfara. Börnin fá ekki aðeins tæknilega þjálfun heldur einnig fræðslu um mikilvægi líkamsræktar, réttrar næringar og andlegrar seiglu, sem skiptir lykilmáli í keppnisíþróttum á borð við motocross.

Foreldrar og stuðningsmenn fylgjast stoltir með árangri barnanna, sem stefna hátt í motocross-heiminum. Ef fram heldur sem horfir má búast við að sjá þessa unga og efnilegu ökumenn keppa á alþjóðlegum mótum í framtíðinni.

bLU cRU heldur þannig áfram að skapa sterkan grunn fyrir framtíðarmenn motocross-íþróttarinnar, með leiðbeinendum á borð við Brian Jörgensen sem tryggja að hæfileikar fái að njóta sín til fulls.


 

26.02 2025 21:51 | Ragga