Hérna eru læti!

Flúðir fimm tímar - skráning hafin!

Flúðir fimm tímar - skráning hafin!

Trans Atlantic Offroad Challenge snýr aftur á Syðra-Langholt við Flúðir þann 30. maí 2026 – stærra, harðara og skemmtilegra en nokkru sinni fyrr.

Ertu klár?

Er hjólið klárt?

Ætlar þú að mæta einn eða með liðsfélaga eða afkvæmi?

Syðra-Langholt við Flúðir
30. maí 2026
Ræst kl. 12:00
Flaggað út kl. 17:00

Boðið verður upp á fjölmarga keppnisflokka, þannig að flestir ættu að geta fundið flokk við sitt hæfi hvort sem markmiðið er að berjast á toppnum eða einfaldlega taka þátt og njóta dagsins.

Svæðið á Syðra-Langholti hentar einstaklega vel fyrir keppni sem þessa, þar sem tjaldsvæðið er stórt og öll aðstaða og aðgengi til fyrirmyndar.

Þetta er ekki bara keppni.

Þetta er fjölskyldu- og vinaveisla, þar sem stemningin, samveran og útilegulífið fá að njóta sín til fulls. Hér sameinast keppni, adrenalín, útivera og allt það sem gerir góða helgi ógleymanlega.

Takmarkaður fjöldi keppenda verður í keppninni þetta árið, þannig að við hvetjum alla til að skrá sig tímanlega.

Linkur og leiðbeiningar fyrir skráningu https://msisport.is/keppni/139

1. Allir sem ætla að keppa þurfa að vera greiddir félagsmenn í félagi. Það er gert með því að skrá sig inn á msisport.is.

2. Aðeins einn liðsmaður skráir og greiðir fyrir liðið sitt. Hann þarf að vita fastnúmer á hjólum allra liðsmanna og fullt nafn þeirra.

Það er ekki nauðsynlegt að vera með tryggingar viðauka lengur.

11.04 2026 17:47