Núna eru aðeins nokkrar dagar eftir af skráningarfresti fyrir Trans Atlantic Offroad Challenge á Flúðum. Skráningu líkur 24.maí kl. 23:59
Af svæðinu er það helst að frétta að mun minna er um bleytu en í fyrra og því líklegt að við getum boðið upp á fleiri skemmtilega sandkafla meðfram ánni.
Stór hópur verður við brautarlagningu um Hvítasunnuna og stefnan er að hafa svæðið tilbúið snemma í næstu viku.
Við viljum einnig vekja athygli á barnakeppninni sem fer fram á föstudagskvöldinu. Þar fá krakkarnir að keyra hluta af túninu og nágrenni í klukkutíma og kynnast þannig hvernig það er að keppa í Enduro. Allir eru velkomnir og best er að hafa samband við Aron Berg í gegnum tölvupóst aronbergpalsson@gmail.com fyrir frekari upplýsingar.
Á föstudagskvöldinu verður einnig svokallaður Playday frá kl. 20:00–22:00. Þar gefst þátttakendum kostur á að keyra hringinn og ná smá forskoti fyrir keppnina á laugardeginum. Einnig er þetta frábært tækifæri fyrir þá sem vilja ekki keppa en langar að taka nokkra hringi og njóta stemningarinnar.
Munum það að þetta er ekki bara keppni.
Þetta er fjölskyldu- og vinaveisla, þar sem stemningin, samveran og útilegulífið fá að njóta sín til fulls. Hér sameinast keppni, adrenalín, útivera og allt það.
Það er gott tjaldstæði i boði(Frítt) og klósett á staðnum.

21.05 2026 09:34











