Hérna eru læti!

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í kappakstri fór fram sunnudaginn 15 júni

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í kappakstri fór fram sunnudaginn 15 júni

Fyrsta um­ferð Íslands­móts­ins í kapp­akstri mótor­hjóla var hald­in er tvær lot­ur voru keyrðar á kapp­akst­urs­braut Kvart­mílu­klúbbs­ins í Hafnarfirði á sunnu­dag.

Tíu kepp­end­ur tóku þátt og voru efstu kepp­end­ur að ná góðum tím­um strax í tíma­tök­un­um þar sem bæði Stefán Or­landi og Jó­hann Leví Jó­hanns­son náðu að keyra und­ir 1 mín 24 og skila sér í tvö efstu sæti tíma­tök­unn­ar.

Jó­hann Leví og Stefán áfram í sér­flokki
Bar­átt­an um efsta sætið var hörð í fyrri lot­unni en nú­ver­andi Íslands­meist­ari, Stefán Or­landi, leiddi keppn­ina í harðri bar­áttu við Jó­hann Leví. Gylfi Þór Héðins­son, Árni Þór Jónas­son og Ingólf­ur Snorra­son börðust um þriðja sætið, en náðu ekki að ógna Stefáni og Jó­hanni Leví.

Að lok­um var það Stefán sem skilaði sér fyrst­ur í mark, tryggði sér þannig fyrstu 25 stig dags­ins og var hraðasti hring­ur hans 1:22,569, sem var jafn­framt hraðasti hring­ur dags­ins. Jó­hann Leví Jó­hanns­son varð ann­ar og Árni Þór Jóns­son þriðji.

Seinni lot­an í járn­um
Bar­átt­an hélt áfram í seinni lot­unni er Stefán og Jó­hann börðust um fyrsta sætið strax frá upp­hafi. Gylfi og Ingólf­ur náður báðir framúr Árna í start­inu og fylgdu bar­átt­unni eft­ir um þriðja sætið en komust aldrei nærri þeim Jó­hanni Leví og Stefáni.

Þannig voru það Stefán og Jó­hann Leví sem börðust hart um fyrsta sætið, skipt­ust á for­yst­unni og buðu upp á einu flott­ustu bar­áttu á braut­inni til þessa.

Að lok­um var það Jó­hann Leví sem skilaði sér fyrst­ur í mark og inn­siglaði þannig sig­ur í lot­unni og jafn­framt fyrstu um­ferð Íslands­móts­ins. Stefán varð síðan ann­ar og Ingólf­ur þriðji.

Loka­úr­slit dags­ins voru eft­ir­far­andi:

1. sæti: Jó­hann Leví Jó­hanns­son á Suzuki, 45 stig

2. sæti: Stefán Or­landi á Honda, 45 stig

3. sæti: Ingólf­ur Snorra­son á Yamaha, 29 stig

4. sæti: Árni Þór Jónas­son á Ducati, 29 stig

5. sæti: Jó­hann Sig­ur­jóns­son á Ducati, 22 stig

6. sæti: Njörður Þórs­son á Yamaha, 19 stig

7. sæti: Gylfi Þór Héðins­son á Yamaha, 19 stig

8. sæti: Ugnius Al­eks­andra­vicius á Honda, 8 stig

9. sæti: Paul­us Al­eks­andra­vicius á Honda, 7 stig

10. sæti: Vai­das Daun­oras á Honda, 6 stig

 

 

 

 

15.06 2025 00:00 | Sveinn Logi Gudmannsson

Skoðaðu úrslit og myndir frá keppninni hér