Hérna eru læti!

Innanbæjar keppni á ENDURO/MOTOCROSS hjólum

Innanbæjar keppni á ENDURO/MOTOCROSS hjólum

Vélhjólaíþróttafélag Reykjaness og Hard enduro félagið kynna innanbæjar keppni á ENDURO/MOTOCROSS hjólum við höfnina í Keflavík.

Allir bestu ökumenn landsins ásamt okkar yngstu og efnilegu framtíðar ökumönnum ætla að sýna listir sínar við höfnina þar sem keyrt verður í gegnum hinar ýmsu þrautir og yfir allskyns hindranir.

Frábær sýning þar sem hægt verður að koma og kynna sér þetta frábæra sport og leyfa yngstu kynslóðinni að setjast á hjólin og fá af sér mynd.

Keppnin/Sýningin fer fram Laugardaginn 7.september klukkan 13:00

7.09 2024 00:00 | Einar Sverrir Sigurðarson*

Skoðaðu úrslit og myndir frá keppninni hér